Jóhanna biðst afsökunar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Mynd:AFP
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, biður Önnu Kristínu Ólafsdóttur, sem sótti um starf skrifstofustjóra forsætisráðuneytisins en fékk ekki, velvirðingar á þeim miska sem málið kunni að hafa valdið henni.
Anna Kristín kærði ráðningu karlmanns í embætti skrifstofustjóra forsætisráðuneytisins og úrskurðaði kærunefnd jafnréttismála að brotið hefði verið gegn jafnréttislögum.
Anna Kristín fór með bótakröfu vegna málsins fyrir héraðsdóm, sem hafnaði 15 milljóna króna skaðabótakröfunni en dæmdi henni 500 þúsund í miskabætur vegna yfirlýsingar sem birt var á vef forsætisráðuneytsins þar sem sérstaklega var bent á að Anna hafi verið fimmta í hæfnismati.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur ekki viljað veita fréttastofu viðtal vegna málsins. Hún ritar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hún segist hafa leitað allra leiða til sátta í málinu. Hún biður Önnu velvirðingar á þeim miska sem málið kunni að hafa valdið henni.
Í gögnum málsins má sjá bréf frá ríkislögmanni þar sem segir að fjölmargt styðji að ekki hafi verið brotið gegn jafnréttislögum við skipun í embættið, kröfum um skaðabætur er hafnað, en sáttavilja lýst yfir og Önnu boðið til viðræðna um greiðslu miskabóta.
Anna Kristín telur þetta ekki hafa verið raunverulegt sáttaboð, því í því felist ekki nein viðurkenning á brotinu. Forsætisráðuneytið hafi beinlínis sett fram efasemdir um að úrskurður kærunefndar jafnréttismála væri réttur. Auk þess hafi Jóhanna hafi aldrei haft samband við sig sjálf né aðstoðarmaður hennar.
Jóhanna hefur lýst því yfir að hún vonist til að málinu sé nú lokið og því er ólíklegt að ráðuneytið áfrýi til Hæstaréttar. Anna Kristín hefur ekki tekið ákvörðun um áfrýjun, en hún hefur 30 daga frest til þess.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













