Jeffrey Zaslow lést í bílslysi

Jeffrey Zaslow

Bandaríski blaðamaðurinn og rithöfundurinn, Jeffrey Zaslow, lést í bílslysi í Michican í gær, 53 ára að aldri. Zaslow var verðlaunaður dálkahöfundur Wall Street Journal og höfundur fjölda bóka.

Hann var meðal annars meðhöfundur metsölubókarinnar The Last Lecture, eða Síðasti fyrirlesturinn, hinstu skilaboða prófessorsins Randy Pausch áður en hann lést úr krabbameini. Þá var Zaslow einnig meðhöfundur bókar sem Gabrielle Giffords, fyrrverandi þingkona, og eiginmaður hennar, skrifuðu um baráttu hennar og bata eftir alvarlegt morðtilræði sem henni var sýnt. Zaslow hafði nýverið gefið út bókina The Magic Room og var á ferðalagi til að kynna hana þegar slysið varð.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku