Játaði að koma sprengju fyrir

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað aðild sína að sprengjumálinu svokallaða. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu. Hann mun hafa verið einn að verki og liggja aðrir ekki undir grun en málið telst upplýst og hefur manninum verið sleppt úr haldi.
Lögregla segir að tilgangur mannsins hafi ekki verið að valda skaða, en hann hafi viljað koma ákveðnum skilaboðum á framfæri. Sprengjan hafi ekki verið til þess fallin að valda eyðileggingu eða hættu, enda hafi maðurinn staðið við hlið hennar þegar hún sprakk.
"Eins og fram hefur komið var maðurinn handtekinn í gær en við húsleit á heimili hans var lagt hald á ýmsan búnað sem tengist áðurnefndu máli. Þá var bíll mannsins sömuleiðis tekinn í vörslu lögreglu en ökutækið er sömu gerðar og lýst var eftir í fjölmiðlum. Fjölmargir voru kallaðir til skýrslutöku í þágu rannsóknarinnar en unnið var sleitulaust að málinu frá því að það kom upp á þriðjudaginn í síðustu viku enda var það litið mjög alvarlegum augum hjá lögreglu," segir í tilkynningu frá lögreglu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
Dóms- og lögreglumálFleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Gæsluvarðhald ákveðið í fyrramálið
Menn handteknir vegna sprengju





