Jakob Jóhann biðst afsökunar

Jakob Jóhann Sveinsson


  • Prenta
  • Senda frétt

Sundmaðurinn Jakob Jóhann Sveinsson hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann biðst afsökunar á ummælum sínum eftir keppni í 100 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í Lundúnum í gær en hann var talsvert frá sínu besta í sundinu.

Yfirlýsing Jakobs Jóhanns:

Eftir sund mitt í gær fór ég beint í viðtal við íslenska fjölmiðla, ég var mjög svekktur eftir það sund enda árangur langt undir væntingum. Af ummælum mínum mátti skilja að ég hafi verið að gagnrýna þjálfarann minn og þjálfunaraðferðir hans síðastliðið ár. Ummælin voru sögð í hita augnabliksins og vil ég biðjast afsökunar á þeim. 

Ég er stoltur að því að keppa á Ólympiuleikunum í London fyrir hönd Íslands og mun leggja mig allan fram á næstu dögum bæði í minni eigin keppni og við að styðja við bakið á liðsfélögum mínum í hvaða íþróttagrein sem þeir keppa í.

Virðingarfyllst
Jakob Jóhann Sveinsson

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku