Jafntefli við Skota
Fyrst birt: 04.08.2012 18:03, Síðast uppfært: 04.08.2012 18:03

Sandra María Jessen skoraði mark Íslands í dag.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta gerði í dag 1-1 jafntefli í vináttulandsleik gegn Skotum ytra.
Sandra María Jessen skoraði mark Íslands þegar kortér var eftir af leiknum og Emma Mitchell jafnaði fyrir Skota á 90. mínútu. Sandra María hefur tekið þátt í tveimur A-landsleikjum og skorað í þeim báðum. Óhætt er því að segja að ferillinn byrji vel.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














