Ítrekað reynt að smygla fíkniefnum

Landsspítalinn.
Spítalar, dómstólar og tannlæknastofur eru meðal þess sem fangar á Litla-Hrauni reyna að nýta sér til að smygla fíkniefnum inn í fangelsið, segir deildarstjóri í fangelsinu. Hann segir flutninga á föngum sífellt vera í endurskoðun.
Fíkniefni fundust á salerni á Landspítalanum á fimmtudag en fangi frá Litla-Hrauni ætlaði að sækja þau daginn áður. Hann hafði þá veriðfluttur á spítalann til læknisskoðunar en fangelsisyfirvöld höfðu áður varað spítalann við að fanginn væri hugsanlega að ná í fíkniefni þar. Efnin sem fundust reyndst vera hass og hvítt efni. Tryggvi Ágústsson deildarstjóri á Litla-Hrauni segir svona tilvik koma reglulega upp og þetta eigi sér víða stað. "Bæði á tannlæknastofum, sjúkrahúsum, þegar fangar fara í dóm í héraðsdómstólum, þannig að þetta eru ýmsir staðir, svo ég nefni eitthvað," segir Tryggvi. Hann segir að reynt sé að gæta fyllsta öryggis þegar fangar eru fluttir, en þessir flutningar séu í sífelldri endurskoðun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
Dóms- og lögreglumálTilkynna um bilaða upptöku

Fíkniefni falin á spítala





