Íslensk lið í Evrópukeppni

Leikið verður í forkeppni Evrópudeildar EUFA í dag þar sem þrjú íslensk lið taka þátt.
Þór sækir írska liðið Bohemians FC heim en Þórsarar komust í úrslitaleik bikarkeppninnar hér heima í fyrra og hefur því þátttökurétt. ÍBV hélt líka til Írlands þar sem það mætir sama liði og í fyrra, St. Patricks. Í fyrra höfðu Írarnir betur samanlagt, 2-1. Báðir leikirnir hefjast klukkan 18:45.
Í Kaplakrika tekur FH á móti USV Eschen-Mauren frá Liechtenstein og hefst leikurinn kl. 19:15.
Þá eru fimm leikir á dagskrá efstu deildar karla í knattspyrnu hér heima:
Grindavík - Valur
Breiðablik - Keflavík
KR - Fylkir
Selfoss - Stjarnan
Fram - ÍA
Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 nema Fram - ÍA sem hefst klukkan 20.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














