Íslendingur skotinn í Tulsa

Bílastæðið í Tulsa þar sem morðið var framið. Mynd: Google Maps.
Átján ára íslenskur piltur var skotinn á bílastæði við verslun og kirkju í bandarísku borginni Tulsa í gærmorgun. Hann var fluttur á sjúkrahús ásamt félaga sínum en lést þar. Félagi hans, Bandaríkjamaður, er í lífshættu.
Að sögn bandarískra fréttamiðla kom til rifrildis milli átján ára Íslendings sem býr í Tulsa og 37 ára bandarísks karlmanns annars vegar og óþekkts manns hins vegar á bílastæði í borginni. Maðurinn sem þeir deildu við dró upp skammbyssu og skaut að bílnum. Bílstjórinn, félagi Íslendingsins sem lést, reyndi að keyra burt en komst ekki langt áður en árásarmaðurinn særði þá lífshættulega. Að því loknu hljóp árásarmaðurinn á brott en lögregla og sjúkralið kom á vettvang og flutti mennina á sjúkrahús. Íslendingurinn lést á sjúkrahúsi en félagi hans liggur þar helsærður.
Lögreglan leitar enn árásarmannsins en að sögn Fox-fréttastofunnar er sá grunaði blökkumaður, með rauða derhúfu og hökutopp.
Utanríkisráðuneytið vildi ekki staðfesta fréttina í samtali við fréttastofu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














