Íslendingar í eldlínunni í Noregi
Fyrst birt: 15.07.2012 21:22, Síðast uppfært: 15.07.2012 21:22

Birkir Már Sævarsson og félagar í Brann unnu öruggan sigur á Odd Grenland í norsku deildinni í dag - Mynd: www.brann.no
Birkir Már Sævarsson var allan tímann inná í liði Brann sem vann Odd Grenland örugglega 6-2 á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Indriði Sigurðsson og félagar í Viking sigruðu Hönefoss, lið Kristjáns Arnar Sigurðssonar og Arnórs Sveins Aðalsteinssonar, 2-1 á heimavelli. Allir léku þeir Indriði, Kristján og Arnór allan leikinn með sínum liðum.
Bjarni Ólafur Eiríksson lék allan tímann með Stabæk sem tapaði fyrir Sogndal 3-1 á útivelli og þá var Andrés Már Jóhannesson á varamannabekk Haugesund sem tapaði fyrir Rosenborg 1-0 á heimavelli.
Stöðuna í norsku deildinni má sjá hér.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













