Íslandsmynd á vef Huffington Post

Ný, stutt heimildarmynd, Íslander, um heimboð Íslendinga haustið 2011 í tengslum við markaðsátakið Inspired by Iceland hefur verið frumsýnd á vef Huffington Post. Þar verður jafnframt sett upp sérstök Íslandssíða, sem helguð verður kynningu á landi og þjóð, segir í tilkynningu frá Íslandsstofu.
Netrisinn AOL mun að öðru leyti sjá um dreifingu myndarinnar en leikstjóri hennar er breski kvikmyndagerðarmaðurinn Rubert Murray. Hann hefur unnið til fjölmargra verðlauna fyrir myndir á borð við Unknown White Make og The End of the Line.
Í myndinni er fylgst með samskiptum Íslendinga og erlendra gesta þeirra á þessum einstöku stefnumótum. Þar má sjá ferðamenn í hlaupatúr með Hlaupasamtökum lýðveldisins, þiggja kennslu í prjónaskap, borða sushi með borgarstjóranum og ljósmyndaferð á Vatnajökul svo eitthvað sé nefnt.
Myndin á vef Huffington Post.
Íslander - 1 minute trailer from Inspired By Iceland on Vimeo.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







