Ísland vann Kýpur á EM í bridge
Fyrst birt: 17.06.2012 18:24, Síðast uppfært: 17.06.2012 18:24
Flokkar: Íþróttir

Íslenska landsliðið í bridge sigraði Kýpur 25-5 í einu viðureign sinni í dag á Evrópumótinu í Dublin á Írlandi.
Að loknum tólf umferðum er íslenska liðið í ellefta sæti B-riðils en aðeins níu efstu þjóðirnar að sautján umferðum loknum komast áfram í úrslitakeppnina sem hefst 20. júní.
Ísland leikur gegn Danmörku, Austurríki og Sviss á morgun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













