Ísland slær í gegn í Game of Thrones

Aðdáendur bandaríska sjónvarpsþáttarins Game of Thrones eru himinlifandi með hvernig vetrarríkið í þáttunum lítur út á sjónvarpsskjánum. Íslenska landslagið fær mikið hrós þótt sumir kvarti yfir skorti á trjám.
Fyrsti þátturinn af Game of Thrones, þar sem tökur frá Íslandi eru notaðar, var frumsýndur vestanhafs í gærkvöldi. Tökuliðið var statt hér á landi í tæpar tvær vikur og var við tökur við Svínafellsjökul og Vík í Mýrdal í nístingskulda og vonskuveðri.
Vefsíðan Winter is Coming, sem hægt er að nálgast hér, fjallar ítarlega um hvern einasta þátt í nýju þáttaröðinni. Þar má jafnframt lesa hvað aðdáendunum sjálfum finnst í athugasemdakerfinu og í færslu um nýjasta þáttinn fær Ísland nánast alls staðar toppeinkunn. "Ísland lítur stórkostlega út," segir einn af aðstandendum síðunnar og undir það taka menn í ummælakerfinu. "Stórkostlegar tökur af Íslandi," bætir einn við. "Hvað er þetta með Ísland?Frábært," heldur einn áfram.
Íslenskt landslag verður áberandi í næstu þáttum en eins og komið hefur fram ætlar tökulið Game of Thrones að endurnýja kynni sín við Ísland í ágúst og þá er hugsanlegt að hér fari fram fleiri viðamiklar vetrartökur.
Hér að neðan má svo sjá kynningarmyndband um tökurnar hér á landi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














