Ísland mætir Frökkum í dag

Ísland mætir Frökkum kl.15.10 í dag

Ísland mætir Frökkum í dag kl.15.10 í lokaumferð milliriðils tvö á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu. Hvorugt lið á möguleika á að komast í undanúrslit keppninnar. Leikur liðanna er í beinni útsendingu á RÚV og lýst beint á Rás 2.

Spánverjar eru efstir í riðlinum með sjö stig og Króatar hafa sex stig en bæði liðin eru örugg áfram í undanúrslit. Slóvenar hafa fjögur stig og Ungverjar þrjú stig en Ísland og Frakkland eru neðst með tvö stig.

Heldur meiri spenna er í undanriðli eitt þar sem Serbía hefur eitt liða tryggt sér sæti í undanúrslitum en liðið er efst í riðlinum með sjö stig. Þjóðverjar koma næstir með fimm stig og Danir með fjögur stig. Makedóníumenn og Pólverjar hafa svo þrjú stig en Svíar reka lestina með tvö stig.

Keppni í báðum milliriðlum lýkur í dag og eru leikirnir eftirfarandi:

15.10 Frakkland – Ísland : Milliriðill tvö

15.15 Pólland – Þýskaland : Milliriðill eitt

17.10 Spánn – Slóvenía : Milliriðill tvö

17.15 Danmörk – Svíþjóð : Milliriðill eitt

19.10 Ungverjaland – Króatía : Milliriðill tvö

19.15 Serbía – Makedónía : Milliriðill eitt

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku