Ísland burstaði Búlgaríu 10-0

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk í leiknum í dag.
Íslenska A-landslið kvenna í knattspyrnu mætti Búlgaríu í undankeppni EM ytra nú síðdegis og vann 10-0. Óhætt er að segja að íslenska liðið hafi valtað yfir það búlgarska og sitja stelpurnar okkar því á toppi riðils 3 þegar tveir leikir eru eftir.
Katrín Jónsdóttir skoraði fyrsta mark Íslands með skalla eftir um tíu mínútna leik eftir hornspyrnu frá Eddu Garðarsdóttur.
Edda kom aftur við sögu tuttugu mínútum síðar þegar hún kom boltanum á Söru Björk Gunnarsdóttur sem skoraði auðveldlega og kom liðinu í 2-0.
Örfáum mínútum síðar tók Sif Atladóttir langt innkast, boltinn barst til Margrétar Láru Viðarsdóttur sem skoraði með skalla.
Staðan í hálfleik var 3-0 en strax í byrjun síðari hálfleiks komu tvö íslensk mörk með mínútu millibili. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þá sitt annað mark, Sara Björk Gunnarsdóttir fylgdi í kjölfarið og staðan orðin 5-0.
Íslenska liðið tók sér þá tæplega kortérs hlé frá markaskorun en bætti svo tveimur mörkum við með þriggja mínútna millibili. Dagný Brynjarsdóttir skoraði eftir sendingu frá Katrínu Ómarsdóttur og Katrín skoraði svo sjálf með góðu skoti rétt fyrir utan vítateig.
Áttunda mark Íslands skoraði Kristín Ýr Bjarnadóttir og Dóra María Lárusdóttir það níunda.
Katrín Jónsdóttir setti punktinn yfir i-ið þegar hún skoraði öðru sinni með skalla eftir hornspyrnu Eddu Garðarsdóttur.
Lokatölur urðu 10-0. Undankeppninni lýkur í september.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














