Íranar boða tíðindi

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, boðaði í morgun að á næstunni yrðu flutt mikil tíðindi af kjarnorkuáætlun Írans.
Forsetinn greindi frá þessu í ræðu sem hann flutti á útifundi í Teheran í tilefni 33 ára afmælis klerkabyltingarinnar í landinu. Hann útskýrði þó ekki nánar í hverju þessu miklu tíðindi fælust en lagði áherslu á að Íranar myndu aldrei beygja sig fyrir hótunum vesturveldanna um refsiaðgerðir hætta þeir ekki auðgun úrans.
Írönsk stjórnvöld sæta vaxandi þrýstingi vegna kjarnorkuáætlunar sinnar. Ekki er langt síðan ríki Evrópusambandsins bönnuðu innflutning á olíu frá Íran og í vikunni tilkynnti Obama Bandaríkjaforseti að stjórnvöld í Washington myndu vinna með Ísraelum að því að koma í veg fyrir að Íranar kæmu sér upp kjarnavopnum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







