Verð á fatnaði alltof hátt

Æ fleiri virðast kaupa fötin sín á flóamörkuðum
Sala á fatnaði hér á landi hefur stöðugt dregist saman frá hruni. Þó jókst einkaneysla á síðasta ári. Það virðist vera að fólk versli orðið meira í útlöndum eftir að hrun varð í verslunarferðinum árið 2009.
Síðustu mánuðina fyrir jól í fyrra fóru til dæmis um 5000 manns í verslunarferðir, bara til Boston. Verð á fatnaði hefur löngum þótt hátt hér á landi og hafa verslunarmenn kvartað yfir háum innflutningsgjöldum og virðisaukaskatti. Morgunútvarpið fór á stjá og ræddi fatakaup við fólkið á götunni. Flestir voru á því að verð á fatnaði sé allt of hátt. Kona á níræðisaldri segist kaupa fötin sín á flóamörkuðum ,,ellistyrkurinn er ekki það hár," segir hún.
Viðmælendur Morgunútvarpsins kvarta einnig yfir háu verði á barnafötum. Verð á þeim gæti þó lækkað innan tíðar. Sjálfstæðisflokkurinn lagði í síðustu vikur fram frumvarp á Alþingi um breytingar á lögum um virðisaukaskatt sem felur í sér að lækka virðisaukaskatt á barnavöru úr 25,5% í 7%.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







