Umdeild uppsögn forstjóra FME

Boðuð uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins kom til umræðu á fundi Efnahagsog viðskiptanefndar Alþingis í morgun. Ástráður Haraldsson lögmaður, sem samdi nýbirta álitsgerð á hæfi Gunnars, var gestur fundarins.

Gunnar Andersen fékk bréf á föstudag þar sem honum var tilkynnt að það ætti segja honum upp störfum. Fékk hann frest til dagsins í dag til að skila inn andmælum.  Búist var við því stjórn FME fengi bréf Gunnars í dag. En Gunnar bað þess í stað um lengri frest til að andmæla uppsögn sinni. Í bréfi sem lögmaður hans sendi stjórn Fjármálaeftirlitsins í dag krefst hann þess að stjórn stofnunarinnar leggi fram það sem hann kallar meint ný gögn til grundvallar fyrirhugaðri uppsögn Gunnars sem forstjóra.

Jafnframt er farið fram á lengri frest til að svara álitsgerð sem stjórn FME fékk Ástráð Haraldsson hæstaréttarlögmann til að gera og skilað var í síðustu viku.  Síðdegisútvarpið fór yfir málið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku