Þróun þráðlausra neta
Fyrst birt: 27.12.2011 17:37, Síðast uppfært: 28.12.2011 12:16

Öndvegisstyrkur Rannís í ár féll í skaut Magnúsar Más Halldórssonar prófessors við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
Fimm vísindamenn vinna ásamt Magnúsi Má eða undir hans stjórn við verkefni sem nefnist Framtíðarhönnun þráðlausra neta. Markmið verkefnisins er að leiða út grundvallareiginleika þráðlausra neta, enda skipa þráðlaus samskipti sífellt stærra hlutverk í nútímasamfélagi. Í verkefninu munu rannsakendur einbeita sér að þeim almennu eiginleikum þráðlausra neta sem gilda, óháð uppsetningu og sértækum aðstæðum. Raunhæf líkön fyrir truflanir verða könnuð sérstaklega.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







