Þrestir sungu beint á RÚV

Karlakórinn Þrestir
Það er margra áratuga gömul hefð að síðasta lag fyrir hádegisfréttir Ríkisútvarpsins sé íslenskt sönglag. Í dag söng Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði síðasta lag fyrir fréttir í beinni útsendingu.
Það var skemmtileg og nokkuð hátíðleg stemning í Útvarpshúsinu í hádeginu þegar kórfélagar í Þresti, allir í kjólfötum að sjálfsögðu, stilltu sér upp og fluttu nokkur lög til upphitunar. Stjórnandi Þrasta er Jón Kristinn Cortez og söng kórinn lagið „Hafnarfjörður" eftir Friðrik Bjarnason, tónskáld og stofnanda kórsins, við texta Guðlaugar Pétursdóttur eiginkonu hans.
Guðfinnur Sigurvinsson, umsjónarmaður Síðdegisútvarpsins, fyldist með herlegheitunum og ræddi við Kolvið Helgason formann Þrastanna. Fyrst tók hann þó tali Unu Margréti Jónsdóttur, dagskrárgerðarmann á Rás 1, en hún sér jafnan um að velja síðasta lag fyrir fréttir.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







