Stígamót á Austurlandi

Stígamót hyggjast auka þjónustu sína á Austurlandi og halda af því tilefni opinn fund í safnaðarheimilinu á Reyðarfirði í kvöld klukkan átta þar sem Austfirðingar geta kynnt sér starfsemi samtakanna.

Elsa Guðný Björgvinsdóttir, tíðindamaður Síðdegisútvarpsins á Austurlandi hitti þær Guðrúnu Jónsdóttur og Önnu Bentínu Hermannssen frá Stígamótum í dag og spurði þær hvers vegna Stígamót væru komin austur á land.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku