Steingrímur J. um gengisdóm
Fyrst birt: 16.02.2012 19:15, Síðast uppfært: 16.02.2012 19:15

Hæstiréttur birti dóm sinn í gær þar sem segir að fyrri endurútreikningar gengislána standist ekki. En Alþingi setti lög um endurútreikningana í lok árs 2010 þannig að vextir voru reiknaði afturvirkt.
Þetta mátti ekki segir í dómnum. Endureikna þarf því á nýjan leik gengistryggð lán sem hæstirréttur fyrr á árinu 2010 taldi ólögleg.
Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra var gestur Síðdegisútvarpsins. Hann flutti Alþingi munnlega skýrslu um málið í dag á þinginu og taldi að svigrúm væri mikið hjá bönkunum til að greiða gengislántakendum húsnæðislána.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







