Stefán Ólafsson um lífeyrissjóðina

Stefán Ólafsson
Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, kom í Síðdegisútvarpið og fór yfir stöðu íslenska lífeyriskerfisins í kjölfar umræðna um skýrsluna um fjárfestingarstefnu, ákvarðanatöku og áhættumat við fjárfestingar lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins árið 2008, sem úttektarnefnd Landssamtaka lífeyrissjóða skilaði í byrjun þessa mánaðar.
Stefán sagði að skýrslan gerði alvarlegar athugasemdir við margt hjá lífeyrissjóðunum og það yrði að taka margt af því sem þar kom fram alvarlega. Stefán sagði að aðilar vinnumarkaðarins virtust telja sig geta farið með sjóðina að vild. „Þeir eru full hrokafullir," sagði hann og að það þyrfti að lækka rostann í þeim. Sjóðirnir væru ekki einkamál þeirra því öllum væri skylt að borga í þá. Ríkið ætti að hlutast meira til um starfsemi sjóðanna að mati Stefáns og hann sagði vanta mótvægi við það mikla vald sem fjársöfnun sjóðanna færði umsjónarmönnum þeirra.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







