Stærsta byggingaframkvæmd í 4 ár

Skóflustunga

Búið er að taka fyrstu skóflustunguna að nýjum stúdentagörðum Háskóla Íslands og eiga þeir að rísa í næsta nágrenni við hann. Verkefnið er stærsta byggingaframkvæmd á höfuðborgarsvæðinu frá hausti 2008. Reiknað er með að hún muni skapa um 300 ársverk en kostnaður verður um 3 milljarðar.

Á görðunum munu rísa fjögur hús, alls um 12.000 m2, með 297 íbúðum fyrir pör og einstaklinga. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í heild í árslok 2013. Nýju íbúðirnar munu verða stúdentum kærkomnar því um 600 voru á biðlista eftir húsnæði í haust að úthlutun lokinni. Guðrún Björnsdóttir framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta var á línunni í Síðdegisútvarpinu og sagði hlustendum betur frá húsunum sem þarna rísa.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku