Sr. Örn Bárður gefur kost á sér

Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju, hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis biskups Íslands.

Örn Bárður er áttundi presturinn sem gefur kost á sér fyrir kosningarnar, sem gert er ráð fyrir að verði í mars. Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur beðist lausnar frá embætti og gert er ráð fyrir að nýr biskup taki við 30. júní í sumar.

Síðdegisútvarpið ræddi við Sr. Örn Bárð. Hin sjö sem hafa tilkynnt um framboð eru: Sr. Agnes Sigurðardóttir sóknarprestur í Bolungarvík og prófastur í Vestfjarðaprófastsdæmi; Sr. Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur Digraneskirkju; Sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup í Skálholti; Sr. Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur, Grafarholti; Sr. Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju; Sr. Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju og Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku