Snæfellsjökull að hverfa
Fyrst birt: 09.02.2012 18:49, Síðast uppfært: 09.02.2012 18:49

Snæfellsjökull þynnist og hopar svo hratt að hann hverfur líklega innan nokkurra áratuga. Orsök þessa eru hlýindi undangenginna ára.
Samkvæmt nýjum mælingum hefur jökullinn lækkað um einn og hálfan metra að meðaltali síðustu tíu ár. Mest þynnist hann á jöðrunum, sums staðar um 30-40 metra, minna á hákollinum en þar hefur hann þynnst um nokkra metra. Á sama tíma hefur flatarmál hans minnkað um rúman ferkílómetra í um 10 ferkílómetra. Helgi Björnsson var gestur Síðdegisútvarpsins og sagði hann það sama eigi við um marga aðra jökla á Íslandi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







