Skyndidauði íslenskra íþróttamanna
Fyrst birt: 03.02.2012 18:39, Síðast uppfært: 07.02.2012 14:46

Ný íslensk rannsókn sýnir að skyndidauði er algengari meðal ungmenna sem stunda keppnisíþróttir en annarra ungmenna eða meira en tvisvar sinnum algengari. Þá er tíðni hærri meðal karla en kvenna.
Greiningar á mikið þjálfuðum íþróttamönnum virðast sumar benda til þess að of mikil þjálfun kann í raun að vera hjartakemmandi. Axel F. Sigurðsson hjartalæknir stjórnaði rannsókninni og hann var gestur Síðdegisútvarpsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







