Skoða sölu á hlut í Landsvirkjun

Þingmenn framsóknarflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að úthlutun virkjanaleyfa til stærri virkjana verði háð því að meirihluti þeirra verði í opinberri eigu. Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaðurflokksins, sagði að meðal annars þyrfti að skoða hvort selja ætti hlut í Landsvirkjun.
Hann sagði að kanna þyrfti kosti og galla þessara hugmynda, Til væru dæmi frá Norðurlöndunum sem mætti skoða sem og eldri deilumál frá Íslandi. Umræðan í kringum HS orku sýndi til að mynda hversu erfitt það væri að hafa ekki náð sameiginlegri niðurstöðu um þessi mál.
Aðspurður hvort möguleg sala á þriðjungshlut í Landsvirkjun væri aðeins fyrsta skref í frekari sölu sagði hann að skiptar skoðanir væru um málið. Innan framsóknarflokksins væru menn til að mynda ekki sammála um það hvort yfirleitt ætti að selja þriðjungshlut. Hins vegar væri nauðsynlegt að taka þessa umræðu, meta kosti og galla, og ræða málin á yfirvegaðan hátt.
Lagt er til að skipuð verði fimm manna nefnd sem skoði þetta og fleiri atriði. Til að mynda hvort setja þurfi skýrar reglur um heimild fyrirtækja í opinberri eigum um fjármögnum stærri verkefna. Einnig hvort ríkið eigi að hafa frumkvæði af því að leggja rafmagnskapal frá Íslandi til Evrópu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







