Sigurður Árni biskupsframbjóðandi
Fyrst birt: 23.01.2012 18:43, Síðast uppfært: 23.01.2012 18:43

Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti biskups Íslands og hann sat fyrir svörum í Síðdegisútvarpinu.
Sigurður Árni segir að framtíð kirkjunnar sé honum efst í huga, hann vill breyta henni og efla. Hann segir að kirkjan eigi að vera framsækin, frjálslynd, lífleg og öllum opin. Kirkjan eigi að heyra gagnrýni, gera upp og vera traustsins verð.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







