Sigríður í biskupskjör

Sigríður, Hallgrímur og Guðfinnur

Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur í Grafarholti gefur kost á sér til embættis biskups Íslands. Hún greindi fyrst frá þessu í Síðdegisútvarpinu á Rás 2.

„Ég stend fyrir ákveðin málefni. Ég held að það séu aðallega fjögur málefni sem skipta mestu máli núna fyrir Þjóðkirkjuna. Ég tel að það sé þörf á töluvert miklum breytingum og umbótum. Það sem mér finnst vera stærst er að það er mjög mikil þörf á samfélagi við þjóðina. Með þjóðinni á ég bæði við á kirkjulegum vettvangi og þeim sem standa utan Þjóðkirkjunnar. Það þarf að ræða um trú og mannréttindi," sagði séra Sigríður í viðtalinu hjá Guðfinni og Hallgrími í Síðdegisútvarpinu. Sigríður er önnur konan til bjóða sig fram til embættis biskups Íslands en séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir gaf kost á sér árið 1997.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku