Sex píanólög frumflutt í Hofi
Fyrst birt: 03.02.2012 18:33, Síðast uppfært: 07.02.2012 14:43

Á sunnudaginn kemur frumflytur Víkingur Heiðar Ólafsson tónverkið Sex píanólög eftir Jón Hlöðver Áskelsson í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Jón Hlöðver segir að kveikjan að verkinu hafi verið stutt tónverk sem dóttir hans samdi þegar hún tók próf í tónlistarskólanum á Akureyri.
Svo þegar Hof var risið fannst honum tilvalið að gera lítinn flokk tónverka og tengja hann ungum og upprennandi píanóleikurum. Ágúst Ólafsson ræddi við þá Jón Hlöðver Áskelsson og Víking Heiðar Ólafsson í Síðdegisútvarpinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







