Safnanótt brýtur niður múra

Heimsóknum fólks á listasöfn fjölgar ár frá ári. Ólöf K. Sigurðardóttir forstöðumaður Hafnarborgar, menningar og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar segir það geta verið vísbendingu um að söfn séu ekki lengur sett upp á óþarflega háan stall.

Kannski að fyrirbæri eins og Safnanótt hafi hjálpað til en markmiðið er einmitt að reyna að lokka inn fólk sem fer sjaldan á söfn. Safnanótt er í dag og er liður í Vetrarhátíð sem var sett í gær. Berglind Häsler fór í fjörðinn.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku