Óvissa um forsetakjör

Ætlar forseti Íslands að kveðja Bessastaði í vor eins og hann virtist tilkynna í áramótaávarpi sínu eða ætlar hann að taka áskorun þeirra sem nú skrifa undir áskorun til hans á vefnum um bjóða sig fram í fimmta sinn?

Nú er liðinn mánuður frá ræðunni. Fyrstu vikur ársins varð það strax ein vinælasta dægradvöl landsmanna að stinga upp á fólki í framboð en sá samkvæmisleikur virðist alveg dottinn niður í bili. Undirskriftasöfnunin virðist hafa þar sitt að segja. Markmið forsvarsmanna undirskrifasöfnunarinnar er fá 40.000 undirskriftir og hafa þegar safnast ríflega 26.500. Hversu langan tíma má þetta ferli taka og heftir þetta aðra sem hafa hug á framboði? Grétar Þór Eyþórsson stjórnmálaprófessor við Háskólann á Akureyri ræddi óvissuna um forsetakjörið í Síðdegisútvarpinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku