Ómögulegt að setja nýja púða í?

Strax eftir helgi verður byrjað að fjarlægja ónýta PIP brjóstapúða á Landsspítalanum úr konum sem hafa farið í ómskoðun.
Ómögulegt gæti þó reynst að setja nýja púða í staðinn. Meira en 400 konur hér á landi fengu iðnaðarsílíkonpúða og stór hluti kvennanna sem hefur farið í skoðun er með skemmda púða. Sílíkonið getur hafa lekið í ýmsa hluta líkamans.
Búið er að ómskoða 105 konur hér á landi með slíkar fyllingar og hefur leki greinst í púðum hjá 71 konu, eða næstum 70% þeirra sem hafa verið skoðaðar. Niðurstöður með púða í þeim rúmlega 40 konum sem voru ómskoðaðar í gær og fyrradag eru ekki komnar í næstu viku verður svipaður fjöldi í ómskoðun.
Landsspítalinn bauð, eins og þekkt er, öllum konum að láta fjarlægja PIP brjóstapúða, hvort sem þeir leka eða ekki og sama hvenær þeir voru framleiddir. Spítalinn hefur þó ekki leyfi til að láta setja nýjar fyllingar í stað þeirra. Vitað er líka að vegna bólgna og skemmda sem hafa orðið getur verið ómögulegt í mörgum tilvikum að setja inn nýja púða um leið og PIP-brjóstapúðarnir eru fjarlægðir. En er raunverulega hægt að setja inn nýjar fyllingar?
Nei, segir kanadískur sérfræðingur Dr. Pierre Blais (Bleis). Hann fullyrðir í samtali við Fréttaímann í dag að það sé vonlaust fyrir konurnar að fá nýja púða í staðinn vegna vefjaskemmda til dæmis. Síðdegisútvarpið ræddi við Sögu Ýrr Jónsdóttur, sem er lögmaður íslenskra kvenna sem hafa verið með ólöglega brjóstapúða. Hún segist ekki kannast við álit af þessu tagi í málinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







