Ófærðin holl fyrir börnin
Fyrst birt: 27.01.2012 18:54 GMT, Síðast uppfært: 27.01.2012 19:11 GMT

Sannkölluð ófærð
„Þetta er allt í lagi, þetta er bara snjór,“ sagði einn viðmælandi Síðdegisútvarpsins þegar fólk var spurt hvernig því hefði gengið að komast áfram í ófærðinni síðustu daga.
„Ég er á jeppa og hef ekki fest mig en maður hefur oft verið nærri því að detta," sagði annar. „Það er hollt fyrir börnin að kynnast þessu," sagði hann. Flestum viðmælenda okkar hafði gengið ágætlega að komast á milli, flestir sögðust hafa gaman að snjónum en líkaði síður við bleytuna og slabbið. Einn kvartaði yfir því að götur í gömlum hverfum, eins og Norðurmýrinni, væru ekki ruddar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







