Náttúran.is verðlaunuð
Fyrst birt: 25.04.2012 18:53, Síðast uppfært: 25.04.2012 18:53

Í dag er Dagur umhverfisins hér á landi. Í tilefni dagsins var vefsíðan Náttúran.is verðlaunuð og veitt Kuðunginn eftirsótta.
Og í dag opnaði umhverfisráðherra nýtt endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem er sérstaklega hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Kortið gefur almenningi nákvæmt yfirlit yfir hvar á landinu tekið er við úrgangi til endurvinnslu. Eigendur vefsíðunnar Guðrún Tryggvadóttir framkvæmdastjóri og Einar Bergmundur Arnbjörnsson tæknistjóri Náttúrunnar.is voru gestir Síðdegisútvarpsins
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













