Mikið selt af einkagulli
Fyrst birt: 09.02.2012 18:44, Síðast uppfært: 09.02.2012 18:44

Gulltönn
Margir hafa undanfarið selt gull úr einkahirslum sínum og sumir jafnvel gulltennurnar úr afa og ömmu. Magnús Steinþórsson gullsmiður í Reykjavík og Mark Nangel breskur kaupandi sem staddur er hér á landi, eru áberandi á þessu markaði um þessari mundir.
En hvað á að fást fyrir grammið af gulli? Mun meira en hinn erlendi kaupandi greiðir sagði Magnús í viðtali við Síðdegisútvarpið og telur að Nangel sé fúskari og plati fólk. Nangel var of upptekinn við gullkaupin á Grand hóteli svo ekki náðist í hann en löng röð fólks beið þjónustu hans síðdegis.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







