Menningarfylgd Birnu Þórðar 10 ára
Fyrst birt: 17.02.2012 18:30, Síðast uppfært: 17.02.2012 18:40

Birna Þórðardóttir
Laugardaginn 18. febrúar fagnar Menningarfylgd Birnu tíu ára afmæli. Í tilefni afmælis býður Birna Þórðardóttir upp á klukkutíma afmælisgöngu um ljúfa staði miðborgarinnar. Upphaf göngunnar verður á Skólavörðuholtinu og þaðan skoppað niður á móti í holt og hólablús.
Birna kom í Síðdegisútvarpið og sagði alls óvíst um viðkomustaði - en einhvers staðar yrði þó endað - á vel viðeigandi stað. Birna segir rétt að geta þess að Menningarfylgd Birnu ehf. hefur ekki skipt um kennitölu á tíu ára starfsferli.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







