Markaðssetja orminn hóflega

Á þriðja hundrað þúsund Japanir skoðuðu í gær myndband sem sumir segja að sýni Lagarfljótsorminn á sundi. Skrímslaáhugi þeirra er þekktur enda Godzilla lifandi í þjóðarsálinni þar.
En má nýta þennan skyndiáhuga á orminum og er ef til vill hægt að markaðssetja hann betur. Morgunútvarpið sló á þráðinn til Skúla Björns Gunnarssonar, stjórnarformanns Markaðsstofu Austurlands og forsvarsmanns félagsskapar er kallast Ormsskrínið. Skúli Björn sagði að fyrir nokkrum árum hafi staðið til að markaðssetja orminn meira. Sú hugmynd hafi hins vegar fallið vegna viðbragða hér heima fyrir.
,,Við Héraðsbúar berum ákveðna virðingu fyrir verunni í fljótinu og menn voru bara ekki tilbúnir til þess að fara út í svona massa markaðssetningu á orminum."
Skúli segir marga þó dreyma um að sett verði á laggirnar Ormsstofa sem yrði með skipulagðar skrímslaferðir um fljótið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







