Lýðræði og velferð

Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar. Það er nafn nýs stjórnmálaflokks sem Lilja Mósesdóttir alþingismaður fer fyrir ásamt Sigurði Þ Ragnarssyni sem þekktur er sem veðurfréttamaður
Spegillinn bað þau Lilju og Sigurð að skýra frá ástæðu þess að þau stofnuðu flokkinn og greina frá stefnumálunum. Stefnan er skýr, segja þau, og þau vilja ekki bendla sig við vinstri- eða hægristefnu og á miðjunni hefur Framsóknarflokkurinn ekki orðið það afl sem byggjandi er á. Samstaða Lilju og Sigurðar vill leiðrétta húsnæðislánin og auka velferð og efla lýðræði, þar á meðal lýðræði innan fyrirtækja. Einnig verður rætt við Guðmund Steingrímsson, formann Bjartrar framtíðar, um það sem hann telur mest áríðandi í íslenskum stjórnmálum núna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







