Lúðum slátrað á Hjalteyri

Fiskey á Hjalteyri, eina fyrirtæki landsins sem framleitt hefur lúðuseiði, var úrskurðað gjaldþrota í haust. Þrotabúið hefur nú verið selt en kaupendurnir, Íslandsbleikja, ætla ekki að halda lúðueldinu áfram.

Þessa dagana er verið að slátra lúðunum og verka, en slíkt er orðið sjaldséð hér á landi enda hefur verið bannað að veiða lúðu við Ísland síðan um áramót.

Snæfríður Ingadóttir, tíðindamaður Síðdegisútvarpsins á Norðurlandi, fór og kannaði málið og hitti fyrir framkvæmdastjórann Arnar Frey Jónsson.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku