Kemur við pyngjuna

Jóhanna Sigurðardóttir

Verðbólga er meiri nú en verið hefur í 20 mánuði. Verð á opinberri þjónustu hækkar mest auk hækkana á bensíni og matvöru. Morgunútvarpið ræddi um þetta við Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Hún segir verðbólguna alltof mikla. Þetta sé hins vegar tímabundið skot en það komi við pyngju fólks.

Verðbólgan mældist 6,5% í janúar og hefur ekki verið meiri síðan í maí árið 2010. Samkvæmt Alþýðusambandi Íslands skýra hækkanir á ýmsum þjónustugjöldum og álögum hjá ríki og sveitarfélögum að mestu þessa hækkun, auk hækkana á bensíni, matvöru, áfengi og tóbaki.  Mest hækkar verð á opinberri þjónustu, í heildina um 5,8%.  Þar af hækkar gjaldskrár orkuveitna fyrir rafmagn og hita um 1,6% og gjöld fyrir sorphirðu, holræsi og vatn um 12,6%.  Þá hækka gjöld vegna heilbrigðisþjónustu um 1,7% og félagsleg þjónusta hækkar um ríflega 11,5% en undir þann lið heyra t.a.m. leikskólagjöld. Þá hækkar verð á mat- og drykkjarvörum um 0,9% frá því í desember, mest vegna hækkana á ávöxtum og grænmeti og verð á bensíni og olíu hækkar um 5,2%. Jóhanna Sigurðardóttir segir verðbólguna alltof mikla en telur að hún muni lækka á næstu mánuðum, um sé að ræða tímabundið skot. Morgunútvarpið ræddi líka við Jóhönnu um verðtrygginguna og stöðuna í Samfylkingunni.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku