Karlar á flótta undan eiginkonum

Karlar í athvarfi frá eiginkonum sínum

Fjórir karlmenn hafa fengið nóg af kaupæði kvenna sinna og hafa komið sér upp athvarfi í kjallara verslunarmiðstöðvar. Þar fela þeir sig fyrir konum sínum, leita huggunar hjá hver öðrum og sinna hugðarefnum sínum.

Gamanleikurinn Karlagæslan eftir þýsk/íslenska höfundinn Kristof Magnusson segir frá því hvernig eiginmenn kaupóðra kvenna bregðast við, þegar þeir hafa fengið nóg af því að vera dregnir með þeim í verslunarferðir. 

Höfundurinn, Kristof Magnusson, hefur þýtt fjölmörg íslensk verk, skáldsögur og leikrit, yfir á þýsku síðustu ár. Þetta leikrit hans hefur verið flutt í fjölda leikhúsa í Þýskalandi, sem og víðar.

Leikritið verður flutt í Útvarpsleikhúsinu, sunnudaginn 27. nóvember kl. 14, á Rás 1.

Leikendur eru Arnar Jónsson, Benedikt Erlingsson, Árni Pétur Guðjónsson og Ingvar E. sigurðsson.

Þýðinguna gerði Bjarni Jónsson, hljóðvinnslu annaðist Hjörtur Svavarsson og leiksjóri er Lárus Ýmir Óskarsson

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku