Kærir Dróma

Björn Steinbekk Kristjánsson hefur kært háttsemi Dróma til Fjármálaeftirlitsins. Hann gerir alvarlegar athugasemdir við aðferðir Dróma við að verðmeta íbúð sína og segir félagið brjóta gegn skyldum sínum sem fjármálastofnun og lánveitandi. Björn kom í Morgunútvarpið í morgun.

Dróma er slitastjórn en þangað ákvað Fjármálaeftirlitið að færa skuldir viðskiptavina Spron og Frjálsa fjárfestingarbankans. Björn og eiginkona hans voru viðskiptavinir Frjálsa fjárfestingarbankans og því er það Dróma sem þau skulda í dag. Ásta S. Helgadóttir, umboðsmaður skuldara sagði í Morgunútvarpinu í gær að staða þeirra sem skulda Dróma sé önnur og verri en þeirra sem skulda hjá bönkunum. Ástæðan sé sú að bankarnir eigi í samkeppni og þurfi því að keppast við að halda í viðskiptavini sína en slíkur hvati er ekki til staðar hjá Dróma. Þar sé því lítill sveigjanleiki.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku