Íslenskir sjómenn fá góða þjálfun

Auðun Friðrik Kristinsson og Hilmar Snorrason

Þjálfun sem sjómenn fá í Slysavarnaskóla sjómanna er mikils virði og íslenskir sjómenn eru vel þjálfaðir til að bregðast við erfiðum aðstæðum segir yfirstýrimaður og sigmaður á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hann og skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna komu í Morgunútvarpið í morgun.

Eiríkur Ingi Jóhannsson sem komst lífs af þegar togarinn Hallgrímur sökk í síðustu viku, sagði sögu sína í Kastljósi í gær en honum var bjargað um borð í þyrlu eftir að hafa verið í um fjóra klukkutíma í sjónum í flotgalla.  Saga hans er átakanleg en þrír sjómenn fórust í slysinu.  Morgunútvarpið talaði um mikilvægi björgunarþyrlna, flottgalla og vel þjálfaðra björgunarmanna og sjómanna við Auðun Friðrik Kristinsson yfirstýrimann og sigmann á þyrlu Landhelgisgæslunnar og Hilmar Snorrason, skólastjóra Slysvarnaskóla sjómanna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku