Íslendingar neyslufrekastir
Fyrst birt: 14.03.2012 20:10, Síðast uppfært: 14.03.2012 20:10

Þótt Íslendingar státi af mikilli, umhverfisvænni orkuframleiðslu og tiltölulega vistvænum fiskveiðum og búskaparháttum - þá er staðreyndin samt sem áður sú að ekki nokkur þjóð í veröldinni býr til jafn stórt vistspor.
Sigurður Eyberg Jóhannesson, umhverfis- og auðlindafræðingur lagðist yfir þessa útreikninga í meistararitgerð sinni, og kynnti niðurstöðurnar nemum við Háskóla Íslands sem nú halda græna daga. Sigruður var gestur Þóru Arnórsdóttur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













