Íslendingar í Noregi snúa ekki heim

Katrín Þyri Magnúsdóttir og Hafdís Halldórsdóttir
Íslendingar í Noregi eru ekki líklegir til að snúa aftur til Íslands innan tíu ára eftir að þeir flytja út.
Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar þeirra Katrínar Þyri Magnúsdóttur og Hafdísar Halldórsdóttur, í viðskiptafræði við HR sem um 180 Íslendingar í Noregi tóku þátt í.
Eru Íslendingar í Noregi líklegir til að snúa aftur til heimalandsins innan tíu ára? Þetta er rannsóknarspurningin og niðurstöðurnar eru þær að Íslendingar eru ólíklegir til að flytja heim frá Noregi til Íslands á næsta áratugi. Auk þess sýna niðurstöður að meirihluti þátttakenda telur að lífsgæði sín hafi aukist í Noregi. Höfundum kom það á óvart að lífsgæði og lífskjör eru það góð í Noregi að mati þátttakenda að þeir eru ólíklegir til að flytja heim þrátt fyrir að kaupmáttur launa í svipuðu starfi væri sá sami. Þær Katrín og Hafdís ræddu þessar niðurstöður í Morgunútvarpinu á Rás 2 og túlkuðu niðurstöðurnar. Íslendingum virðist líða vel í Noregi er afar sátt við lífskjör og lífið þar á slóðum.
Atli Steinn Guðmundsson er einn af fjölmörgum Íslendingum sem flust hafa búferlum til Noregs eftir íslenska efnahagshrunið. Hann sagði niðurstöður þessarar rannsóknar ekki koma sér á óvart. Íslendingar virðast kunna vel við sig í Noregi. Þar sé auðvelt að fá vinnu. Vinnutíminn sé styttri og launin almennt betri. Íslendingar eru auk þess eftirsóttir í störf og njóta virðingar. Samfélagið og vinnuumhverfið sé auk þess fjölskylduvænna og heilbrigðiskerfið mun betra. Atli Steinn er einn þeirra Íslendinga sem ætlar ekki að flytja aftur heim til Íslands á næstu tíu árum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







