Hver leysir gengislánagátuna?

Hvenær er hægt að gera ráð fyrir því að skuldastaða þeirra sem tóku gengislán komist á hreint í kjölfar hæstaréttardómsins í síðustu viku?

Hver eða hverjir eiga að hafa forystu um að reikna dæmið - eru það bankarnir, efnahags- og viðskiptaráðherra, Seðlabankinn og FME með leiðbeinandi reglum, Alþingi með nýrri lagasetningu eða þarf fleiri dóma í Hæstarétti til að skýra þetta betur?

Forsvarsmenn Samtaka fjármálafyrirtækja og fulltrúar bankanna hafa setið á fundi með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í dag til að ræða hvernig bankarnir túlka dóminn og hvernig þau ætla að vinna úr honum. Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, sagði fyrr í dag að það vanti enn niðurstöður í fleiri prófmál og það muni taka nokkra mánuði að fá þau úrslit.

En hverjir koma að þessarri gengislánagátu? Hvernig leysist úr þessu óvissuástandi? Á línunni í Síðdegisútvarpinu til að ræða þetta var María Thejll, formaður eftirlitsnefndar sem fylgist með framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku