Hrísey: Frystihús lifnar við

Hrísey
Frystihúsið í Hrísey gengur nú í endurnýjun lífdaga. Síðustu vikur var unnið að standsetningu hússins og færiböndin rúlla nú þar á nýju ári.
Frystihúsið í Hrísey var byggt árið 1936 af KEA sem hélt þar uppi blómlegri útgerð og fiskvinnslu fram til síðustu aldamóta. Það var mikil blóðtaka, bæði fyrir atvinnu- og mannlíf í eynni, þegar starfsemi þess lagðist af.
Síðan KEA hætti fiskvinnslunni hefur ýmis starfsemi verið í gamla frystihúsinu, en síðasta árið hefur það þó staðið autt. Nú hefur Útgerðarfélagið Hvammur keypt húsið af Byggðastofnun og fært þangað rekstur sinn. Snæfríður Ingadóttir okkar manneskja fyrir norðan gerði sér ferð út í Hrísey þegar fiskvinnslan var að komast á kopp og ræddi þá við Þröst Jóhannsson hjá Útgerðarfélaginu Hvammi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







