Hæstu gjöld á hesthús um 800 þúsund

Um tvö hundruð hestamenn komu saman til fundar í gær til að ræða hækkun fasteignagjalda á hesthús. Hækkunin nemur frá tugum upp í mörgu hundruð þúsund. Rúnar Sigurðsson, formaður Fáks, segir að vilji sé fyrir því hjá Reykjavíkurborg að fresta gjaldtökunni en að málið sé í raun í höndum Alþingis.

Hesthús eru nú skilgreind sem iðnaðarhúsnæði sem skýrir hækkunina. Rúnar benti á að yfirleitt sé um frístundastarf að ræða og flokkunin því óeðlileg. Þær skýringar hafa fengist hjá borginni að um mistök sé að ræða en að lítið sé hægt að gera fyrr en Alþingi breyti lögum. Taka á málið fyrir í Borgarráði á fimmtudag og þá eiga hestamenn fund með ráðuneytisstjóra iðnaðarráðuneytisins á miðvikudag.

Rúnar gagnrýndi einnig að málið hefði verið lítið og illa kynnt. Á fundinum í gær sagði fulltrúi borgaryfirvalda að hækkunin hefði komið fram í fjárhagsáætlun borgarinnar. Rúnar benti hins vegar á að það gæti ekki talist fullnægjandi kynning.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku