Gunnar Sigurjónsson biskupsefni
Fyrst birt: 06.02.2012 18:49, Síðast uppfært: 06.02.2012 18:49

Sr. Gunnar Sigurjónsson
Enn bætist í hóp biskupsframbjóðenda því nú er sjöunda biskupsefnið komið fram en það er séra Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur í Digraneskirkju.
Séra Gunnar segir í yfirlýsingu að Þjóðkirkja sem hagar störfum sínum með það að marki að gera veg Krists sem mestan á meðal fólks sé kirkja á réttri leið.
Hann segir líka að Þjóðkirkjan sé einnig öðrum þræði stofnun. Sem slík axli hún margvíslega ábyrgð og hafi ríkum skyldum að gegna í samfélaginu. Í því felist áskoranir og vandi í senn. Sem stofnun megi kirkjan margt læra og bæta. Hún þurfi að ástunda heilbrigða stjórnsýslu. Séra Gunnar var gestur Síðdegisútvarpsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







